Litli heimurinn minn.

Velkomin í litla heilminn minn

26.11.2006 00:36:41 / Gudda A

HALLÓ

HÆTTIÐ AÐ KOMA HINGAÐ:( ÉG Á NÝJA SÍÐU  NÚNA. SEM ER http://www.gudrunarna.bloggar.is 

Já ég segi STOPP nú;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 09:23:31 / Gudda A

Komiði sæl og blessuð

Nú er mín komin með nýtt blogg. Jebb ég er soldið klár ég veit...:haha: En allavega er núja flotta bloggið mitt: http://gudrunarna.bloggar.is/ Kíkiði á það NÚNA

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 09:48:50 / Gudda A

Föstudagur

Hæ allir. Þá er bara vikan búin, mér fannst hún bara vera rétt að byrja.8) Það er alveg endless skemmtun hjá mér þessa dagana,ég er búin að vera heima með Birkir Ísar veikan. Hann semsagt var komin með smá hita á miðvikudag og við erum búin að vera heima í dag og í gær. Greyið litla var með 39,5 stiga hita í gærkvöldi þegar ég mæli hann. og svo í morgun 39,2.:( Svo getur maður verið alveg BLANKÓ, Magga konan hans pabba kíkti á mig seinnipartin í gær og segir eitthvað svona "Guðrún getur verið að Birkir sé að taka tennur?" og ég eithhvað bara"HA":$ Hafði ekki tekið eftir neinu. Svo fór ég að kíkja og þreifa á gómnum, jú jú þokkalega eru 4 jaxlar að dúndrast niður í einu.Alveg allur gómurinn stokkbólginn, bæði uppi og niðri.      Maður er stundum ekki alveg með fúlle femm:^)

En hef svosem ekkert skemmtilegt að segja þannig að ég kveð í bili úr GREINJANDI rigningu í Grindavík.:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 20:36:04 / Gudda A

Árið er 2006

Þú veist að það er 2006 ef.....

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að
því
þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara
á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir  tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á
framfæri
einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 14:38:35 / Gudda A

Þessi er ÆÐI!!!!!!!!!

Einn daginn fór gömul kona með fulla tösku af peningum í banka.

Við afgreiðsluborðið sagði hún að hún vildi bara tala við

bankastjórann, um að opna sparireikning: ''þetta eru miklir

peningar, þú skilur.''

Eftir langar rökræður var konunni fylgt til bankastjórans

viðskiptavinurinn er konungur!!!

Bankastjórinn spurði um upphæðina sem konan vildi leggja inn.

Hún sagði honum að það væri um 50 milljón evrur að ræða. Hún tæmdi

töskuna fyrir hann. Auðvitað varð bankastjórinn forvitin um hvaðan

allir þessir peningar

kæmu.

´´Kæra frú, það kemur mér á óvart hversu mikla peninga þú hefur

 hvernig stendur á því?´´

Gamla konan svaraði honum ´´ Mjög einfalt. Ég veðja!´´

´´Veðjar?'' spurði bankastjórinn, ´´hvers konar veðmál?''

Gamla konan svaraði:´´Jah, allt mögulegt. Til dæmis, veðja ég við

þig, uppá 25.000 evrur að eistun á þér séu ferköntuð!´´

Bankastjórinn fór að hlæja og sagði: ´´Það er fáránlegt! Á þennan

hátt getur þú aldrei unnið svona mikla peninga.´´

Jæja, eins og ég sagði áðan, þá er það á þennan hátt sem ég vinn

mér inn peningana. Ert þú tilbúin til að taka þátt í þessu veðmáli?´´

´´Auðvitað!´´ svaraði hann. Það voru jú miklir peningar í húfi.

´´Ég veðja semsagt 25.000 evrum uppá að eistun á mér séu ekki

ferköntuð.´´

Gamla konan svaraði:´´ Samþykkt, en þar sem þetta eru miklir

peningar, má ég þá koma við á morgunn, klk 10:00 með lögfræðinginn

minn, svo að við höfum líka vitni?´´

´´Auðvitað!´´ Bankastjórinn samþykkti.

Um nóttina var bankastjórinn frekar taugaóstyrkur og skoðaði

ýtarlega á sér eistun, tímunum saman. Fyrst öðrumegin svo hinumegin.

Að lokum með hjálp einfalds prófs varð hann 100% öruggur. Hann

myndi vinna veðmálið, alveg viss!

Morguninn eftir kom gamla konan, klk 10:00 í bankann með

lögfræðinginn sinn.

Hún kynnti mennina tvo hvor fyrir öðrum og endurtók veðmálið uppá

25.000 evrur.

Og uppá nýtt samþykkti bankastjórinn veðmálið að eistun á sér

væru ekki ferköntuð. Eftir það bað hún hann um að taka niður um sig

buxurnar til að skoða málið (punginn) einu sinni.

Bankastjórinn tók niður um sig buxurnar, gamla konan kom nær,

skoðaði punginn í rólegheitum og spurði hann varlega hvort hún

mætti koma við eistun.

Mundu eftir að það eru miklir peningar í húfi.

´´O.K.´´ sagði bankastjórinn öruggur.

´´ Þetta er 25.000 evra virði og ég skil vel að þú viljir vera viss.

Þá kom konan enn nær og hélt eistum mannsins í lófa sér.

Þá tók bankastjórinn eftir því að lögfræðingurinn var farinn að

berja hausnum á sér við vegginn.

Bankastjórinn spurði konuna:´´ Hvað er að lögfræðingnum

þínum?´´

Hún svaraði: ´´ Ekkert, ég veðjaði við hann, uppá 100.000 evrur að

ég skildi í dag klk 10:00 hafa eistu á bankastjóra í hendi mér

:haha::haha::haha:.


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 14:24:05 / Gudda A

Þriðjudagur til þrautar.

Góðan dag. Ég var rosa dugleg í gær. Haldiði að mín hafi ekki drifið sig á körfuboltaæfingu8) Ég var búin að gleyma hvað mér finnst þetta gaman. Ég hef bara ekkert æft körfu síðan að við stelpurnar tóku okkur til og æfðum, í heilan vetur held ég, en það var þegar maður var í FAS. Já ég veit langt síðan það var.:$ En ég kom sjálfri mér nokkuð á óvart. Það var aðalega tvennt8| Í fyrsta lagi þá hitti ég ÓTRÚLEGA mikið þó ég segi sjálf frá. Og í öðru lagi þá er ég í ÓTRÚLEGA lélegu formi, ég hljóp nokkar ferðir fram og til baka og ég var búin á því. En ég með mitt keppnisskap hélt áfram og var alveg að sprínga:^) En þetta var bara ÆÐI. Mér finnst líka mjög merkilegt miðað við átökinn í gær þá vottar ekki fyrir harðsperrum. En það er bara fínt. Svo klukkan fimm í dag er mín að fara í ræktina og púla meira.  Þannig að það er bara endalaus stemmning í Grindó þessa dagana.

En allavega bless í bili:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 19:07:21 / Gudda A

Þetta er ég;)

Tvíburinn

Tvíburinn er síðasta vormerkið og líkt og með Hrútinn og Nautið má sjá ákveðin voreinkenni í fari hans. Júní er tími heimsókna og ferðalaga, því ófærð og kyrrstaða vetrarins er að baki. Á tíma Tvíburans er sumarið handan við hornið og góðviðri ríkjandi. Léttleiki, heiðríkja og bjartsýni eru einkennandi, en jafnframt því hreyfanleiki og félagslyndi.


Fjölbreytni

Tvíburinn þarf fjölbreytni til að viðhalda lífsorku sinni. Honum líður best þegar mikið er um að vera og þess er krafist að hann sinni mörgum verkefnum á sama tíma. Honum leiðist vanabinding og hann verður þreyttur ef hann þarf að fást of lengi við sama verkið. Fjölbreytni og hreyfing eru honum nauðsynleg til að viðhalda orku. Hann þarf að skipta reglulega um umhverfi, enda er ein uppáhaldssetning hans: "Ég þarf aðeins að skreppa."


Pælingar

Tvíburinn er loftsmerki og þarf pælingar og vitsmunalega umræðu til að endurnæra orku sína. Tvíburanum fellur því vel að vinna störf sem krefjast hugarbeitingar og fjalla um margvísleg málefni. Hann er fljótur að setja sig inn í ný mál. Lykilorð fyrir Tvíbura eru tjáskipti og upplýsingamiðlun, enda margir kennarar, blaða- og fréttamenn fæddir í þessu merkinu.


Félagslyndi

Tvíburinn er félagslyndur. Ef hann er bundinn inni á heimili, er í félagslegri einangrun eða er fastur yfir einhæfum handtökunum, verður hann fljótt leiður, þreyttur og slappur. Þegar mikið er um að vera og nóg af fólki, forvitnilegum atburðum og umræðu, lyftist geð hans og orkan eykst. Ef hann er ekki léttur og hress, gæti ástæðuna verið að rekja til of einhæfra lífshátta.


Forvitni

Tvíburinn er oftast forvitinn og fróðleiksfús. Ef starf hans er ekki fjölbreytt og fræðandi situr hann oft fyrir framan sjónvarp í frístundum sínum, skiptir á milli rása og horfir á fréttir og fræðsluþætti. Þörfin fyrir fræðslu, hreyfingu og fjölbreytni, getur því birst líkamlega, sem þörf fyrir að setjast uppí bíl og keyra á milli staða, eða á huglægan hátt, sem hreyfanleg og leitandi hugsun.


Málgefni og fjölhæfni

Tvíburinn er oft málgefinn (staða hugarpláneturnnar, Merkúrs, skiptir miklu í þessu sambandi) og hefur gaman af því að segja frá. Í fjölskylduboðum og öðrum samkvæmum gengur hann á milli manna og herbergja og talar og segir sögur. Auk félagslyndis og sagnagleði, er fjölhæfni eitt af einkennum hans, sem þýðir að margir í þessu merki fást við tvö til þrjú mismunandi störf. Ef Tvíburinn er í einu starfi, þá leitar hann eftir breytilegum verkefnum innan þess starfs, pælir mikið og er alltaf reiðubúinn að skoða nýja fleti eða ræða við samstarfsmenn um þeirra mál. Tvíburinn hefur ekki áhuga á að beina athyglinni lengi að einu máli í einu.


Frelsisást

Annað einkenni á Tvíbura er frelsisást. Honum er illa við bönd, sérstaklega þau sem hindra hreyfanleika hans. Því er það svo að þótt Tvíburinn sé að öllu jöfnu vingjarnlegur og glaðlegur, þá hleypir hann fólki ekki of nálægt sér.


Tvískipting

Eins og nafnið Tvíburi gefur til kynna virðist oft sem Tvíburinn geymi tvo persónuleika innra með sér. Þetta birtist í fjölhæfni hans og þörf fyrir fjölbreytni, en einnig í óútreiknanlegu eðli eða því að hann getur sýnt tvö andlit, eftir umhverfi og aðstæðum.

Þegar talað er um 'Tvíburann' og 'Tvíbura', er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Tvíburamerkinu. Þeir einstaklingar sem eru fæddir á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.

Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin.



» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 15:31:22 / Gudda A

Markaðsetning 103;)

Fólk biður oft um útskýringu á "markaðssetningu." Jæja hér kemur hún:

  •  Þú ert kona og sérð flottan mann í partýi. Þú ferð upp að honum og segir,
    "Ég er frábær í rúminu." Þetta er bein markaðssetning.
      
  •  
  •  Þú ert í partýi með fullt af vinum og sérð flottan mann. Einn af vinum
    þínum fer upp að honum, bendir á þig og segir, "hún er frábær í
    rúminu."Þetta er auglýsing.
  •  
  • Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Þú labbar upp að honum, færð
    símanúmerið hans, hringir í hann daginn eftir og segir, "Hæ, ég er frábær í
    rúminu." Þetta er símamarkaðsetning.
      
  •  
  • Þú ert í partýi og sérð flottan mann, þú lagar til fötin þín, labbar upp að
    honum og réttir honum glasið þitt og segir við hann, "Fyrirgefðu, má ég?"
    Lagar bindið hans, nuddar brjóstunum létt utan í hann og segir, "Ó á meðan
    ég man, ég er frábær í rúminu." Þetta eru almannatengsl.  
  •  
  •  
  • Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Hann labbar upp að þér og segir,"Ég
    hef heyrt að þú sért frábær í rúminu." Þetta er þekkt vörumerki.
  •  
  • Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Hann langar í þig en þú færð hann til
    að fara heim með vinkonu þinni. Þetta er söluorðspor.
  •  
  • Vinkona þín getur ekki fullnægt honum, svo hann hringir í þig. Þetta er
    tækniaðstoð.
  •  
  • Þú ert á leið í partý þegar þú uppgötvar að það gætu verið flottir menn í
    öllum þessum húsum sem þú ert að labba framhjá. Svo þú klifrar upp á þakið á
    einu af þessum húsum, sirka í miðjunni og öskrar úr þér lungun, Ég er frábær
    í rúminu." Þetta er ruslpóstur.
  •  
  • Þú ert í partýi, þessi vel byggði massaði maður kemur til þín, káfar á
    brjóstunum á þér og klípur í rassinn. Þetta er Arnold Schwarzenegger.
  •  
  • Þér finnst það gott, en 20 árum seinna ákveður lögfræðingurinn þinn að
    þetta hafi verið kynferðisleg áreitni og undirbýr lögsókn. Þetta eru
    Bandaríkin.
     

Góður þessi:haha:

 
 
 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 17:27:24 / Gudda A

Komiði sæl og blessuð...

Jæja þá! Ég var búin að skrifa gegt mikið hér áðan en strokaði það allt út (veit ekki hvernig mér tókst það):^) Ég er semsagt orðin net pirruð... En allavega, í stuttu máli það sem hefur gerst hjá mér og mínum síðasta einn og hálfa mánuðinn er eftirfarandi:

1. Byrjaði að vinna í lok ágúst í Íslandsbleikju, já mín er komin í slorið á nýjan leik. En það er bara alveg ágæt er að vinna bara fyrir hádegi, strákarnir eru í leikskóla og hjá dagmömmu frá 8-13 þannig að ég á smá ME-TIME á hverjum degi (það er reyndar bara rétt klukkutími en samt:haha:

2.Er byrjuð í kvöldskóla, tölvu-og skrifstofunám(þarf að leggja mikla áherslu á tölvuna svo að ég meiki það að blogga) Er í skólanum 3kvöld í viku sem er fínt fyrir utan það að ég missi alltaf af Opruh vinkonu minni á miðvikudagskvöldum (eins gott að Grey´s Anatomy byrji ekki á meðan ég er í skólanum:$)

3. Við erum ný flutt í annað húsnæði sem er bara fínt það er aðeins minna en hitt en allt nýuppgert þannig að það eru bara fín skipti,reyndar finnst mér mesti plúsin við það að nú hef  ég sturtu í stað baðkars áður:P

Og þá er það komið, allavega í stórum dráttum, hef ekki tíma í meir núna. Er á leiðinni í skólann8|

Tölvunördið kveður í bili(gegt pirruð á þessum mistökum áðan):klikk:


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 13:21:22 / Gudda A

Góðan dag og takk fyrir síðast...

Halló allir sem nenna að lesa:!:

Við erum kominn úr fríinu okkar í Þýskalandinu, sem var bara rosa gaman:haha: Reyndar var þetta enginn afslöppunarferð. Við vorum á fullu spani alla dagana, keyrðum m.a. til Lúxemburg og Hollands, fórum og skoðuðum miðbæinn í Köln (shit hvað það er eitthvað mikið af fólki ALLSTAÐAR8|) Við fórum líka í gokart á Michael Schumacher brautinni. Reyndar fóru strákarnir bara í það og við stelpurnar gerðum bara það sem okkur var sagt að gera TAKA MYNDIR;) Svo dukkum við líka SMÁ bjór (á maður ekki að gera soldið af því í útlöndum;) ) Kíktum líka til Rúnu Einars. en hún býr rétt hjá bróðir hans Gunna, það er alveg flottur búgarður sem hún á þarna úti. Þetta var bara eins og í bíómyndunum. Geggjað alveg.

   Svo á í tollinum úti lenti Gunni í sprengjuleit, hann var með einhverja bílahátalara í handfarangri og var farið með hann inn í eitthvað herbergi, svo sé ég einhvern mann labba á eftir honum í latexhönskum með vökva í brúsa ómægod8| :!: En þvað slapp fyrir horn, enginn not fyrir hanskana sem betur fer:haha:

  En allavega við kominn heim eftir frábæra viku, alltaf gott að koma heim og  knúsa strákana okkar:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 21:50:58 / Gudda A

Gleymdi!!!!

 Það er SÓL:haha: og 25 stig í þýskalandi (Eða var í dag) og verður áfram BRAKANDI blíða 8)

 Varð að deila þessu með ykkur :D8):)

ókeibæ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 21:48:12 / Gudda A

Síðasta útkall!!!!!

Stutt blogg núna. Er á fullu að pakka niður, erum að fara 2 við hjónaleysin í viku ferð til þýskalands Er orðin svo spennt (ísskkrr) Blogga meira seinna. Verð að klára að pakka fljúgum eldsnemma í fyrramálið. Bless í bili:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 10:25:24 / Gudda A

Góðan dag

Hæ allir;) Jæja mikið búið að vera að gerast hjá okkur í Grindavík undanfarna daga, Rut og stelpurnar eru hér og við erum búin að skemmta okkur konunglega. Erum búin að fara í bío, vatnaveröld, óvissuferð á slökkviliðsstöðina í Grindavík ogfl. Svo eigum við eftir að bralla eitthvað meira saman, því þær verða hjá okkur eitthvað fram yfir verslunarmannahelgi.Gaman gaman.:haha:

 Ég hef það ekki lengra í bili, meiri fréttir seinna. 8|


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 10:52:55 / Gudda A

Grasið grænna hinumeginn

Ég er viss um að nágranninn minn sé ofvirkur eða hreinlega á örvandi! Ég hef aðeins séð til hans útí garði að vinna og ég skal segja ykkur það, þvílík ást í gangi þarna;) Á milli gamla nágrannans og garðsins hans. Hann er örugglega kominn á eftirlaun því þarna spígsporar hann allan liðlangan daginn. Og svo slær hann blettinn 3-4 sinnum í viku8| (Sko ég er búin að slá 1 sinni í allt sumar8) ) Hver slær garðin sinn svo oft í viku, spurning hvort það sé ekki kominn tími á eitthverja tilbreytingu hjá kalli. Honum er líka alveg sama hvað klukkan er, hvort sem hún er rétt að skríða í 8 á morgnana eða að slá 10 á kvöldinn. Svo er hann örugglega með einhvern safnkassa bak við hjá sér (hef ekki farið yfir og tekið þetta almennilega út hjá kalli) því þegar vindur blæs af austri þá gís þessi líka hressilegi fnykur BEINT yfir snúrurnar hjá mér. Og þar sem ég flutti frá  einum rigningarstað á annann þá eru allir þurrir daga notaðir í fataupphengingar á þessa annars ágætu snúru:S

Ætli grasið sé grænna hjá honum en mér? já sennilega.

En kommon,hann á konu,. Hef séð hana elta hann um allan garð, kannski sér hún um safnkassann?????? Hugleiðing:$

Bless núna.


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 16:40:11 / Gudda A

Mánudagur til mæðu.

Skoðiði þetta, léttir lundina svona í byrjun vikunar8|

Vildir þú ekki stundum óska að þú gætir farið aftur í tímann þegar
1. Ákvarðanir voru teknar með því að nota "Úllen dúllen doff" eða "Ugla sat á kvisti"?
2. Peningamál voru afgreidd af þeim sem var bankastjórinn í Matador.
3. Hægt var að gleyma sér tímunum saman við að blása á biðukollur og eltast við fiðrildi.
4. Það þótti ekkert athugavert við það að eiga tvo til þrjá "bestu" vini.
5. Það að vera "gamall" átti við hvern þann sem kominn var yfir tvítugt.
6. Pabba tókst að láta þumalinn á sér hverfa og birtast til skiptis.
7. Brennó þótti merkilegra en nokkur íþróttagrein.
8. Þeir sem voru "vopnaðir" í skólanum voru þeir sem voru með teygjubyssur.
9. Engin(n) var fallegri en mamma.
10. Pabbi var sterkasti maður í heimi.
11. Sár gréru með einum kossi.
12. Fyrsti vetrarsnjórinn olli óendanlegri gleði.
13. Fimmtudagskvöldin voru "öðruvísi" af því að það var ekkert sjónvarp og fólk eyddi meiri tíma í að tala saman.
14. Þú fékkst dót fyrir að vera dugleg(ur) hjá tannlækninum.
15. Það vandræðalegasta sem gat komið fyrir þig var að vera valinn síðastur í brennóliðið.
16. Eldri systkini þín gátu kvalið þig endalaust, en voru jafnframt fyrst til að vernda þig.
17. ABBA myndir voru verðmeiri en nokkur hlutabréf.
18. Það að snúa sér hring eftir hring eftir hring var nóg til þess
að fá klukkutíma hláturkast.
19. Loforð um að fá ís var nóg til þess að þú kláraðir matinn þinn.
20. Ef þú kannast við meirihlutann af þessu, þá hefurðu LIFAÐ!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan